100. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 7. október 2016 kl. 12:50


Mættir:

Guðmundur Steingrímsson (GStein) 1. varaformaður, kl. 12:50
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 12:50
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 12:50
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 12:50
Steingrímur J. Sigfússon (SJS) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 13:12
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 12:50

Unnur Brá Konráðsdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
Haraldur Einarsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 12:50
Dagskrárlið frestað.

2) Málefni útlendinga Kl. 12:50
Á fund nefndarinnar komu Hermann Sæmundsson, Íris Kristjánsdóttir og Lilja Borg Viðarsdóttir frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir málefni útlendinga og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 874. mál - stofnun millidómstigs Kl. 13:15
Á fund nefndarinnar komu Kristín Axelsdóttir frá innanríkisráðuneytinu og Sigurður Tómas Magnússon prófessor við Háskóla Reykjavíkur. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 13:35
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:30